Ég í átt að nýjum lífstíl og líkama
Könnun
Hreyfiru þig?
Nei
3 atkvæði

Já 1-2x í viku
0 atkvæði

Já 3-5x í viku
3 atkvæði

Já en mæti bara örsjaldan
1 atkvæði

Já, mæti sko næstum alla daga
6 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 13
Dagsetning
28. janúar 2012
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Leitarbox

19.03.2008 08:03:55 / nyrlifstill

-400

Jæja -400, þetta smá mjakast! En ofsalega hægt. Þá eru ekki farin nema 1,8 kg í heildina. Reyndar er búið að vera crazy að gera hjá mér og ég bara hef ekki verið nógu dugleg að skipuleggja mig í þessu amstri svo að ég hef ekki verið nálægt 100%. Og svo er ég með svo svakalega beinhimnubólgu sem hefur verið að hrjá mig í næstum 5 vikur núna svo að ég hef ekki getað hlaupið nógu mikið undanfarið. Ætla nú að láta doksa kíkja á mig, held að þetta sé ekki eðlilegt. Ætla líka að tékka á bætiefninu AstaZan, þekkiði það? Hef tekið það áður því ég gjörsamlega gat ekki gegnið af harðsperrum og það virkaði rosa vel! Ætla að prófa það núna og athuga hvort beinhimnubólgan hverfi ekki í leiðinni 8|

Annars eru 7 dagar í fyrsta markmið sem eru 5 kg! Sé nú ekki fyrir mér miðað við hvað allt gengur hægt að ég missi allt í einu 3,2 á einni viku!! En draumar geta nú reyndar ræst hehe svo að ég held ótrauð áfram:lol: Ætla allavega ekki að breyta næsta markmiði því það verður bara refsing að ná því þá fyrr.

Hvernig er það, nú er ég með barn á brjósti ( 7,5 mánaða og drekkur mikið) , borða hollt og hreyfi mig MIKIÐ, ætti ég ekki að vera að detta í sundur!!? Hefði haldið að það ætti frekar að vera casið en að ég myndi ekki ná af mér þessum ljótu þrjósku óléttu/auka kílóum :evil::cry: Alveg sorglegt buhu

En gangi ykkur vel8)



» 9 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 20:51:07 / nyrlifstill

I am back!!

Jæja þá er maður komin í gang aftur eftir 10 daga frí. Fór í ferðalag ásamt fjölskyldu og vinum og það var bara æðislegt. Kúrinn hélt sér reyndar ekki en ég missti mig nú ekkert. Viktin fór niður um 200 gr þessa vikuna. Það er nú ekkert rosalegt en það er nú samt mínus tala. Núna eru 14 dagar í fyrsta markmið sem eru 5 kg. Er búin að missa 1,4 sem þýðir að 3,6 verða að fara á næstu 2 vikum. Og vitiði... mér tekst það!! :) Sjáiði bara sko hihi

Annars var dagurinn svona:
Morgunmatur: ananas,banani og gulrætur í blandara+ hafragrautur
hádegismatur: lax m. létt mæjó hrist saman með hvítlauk og dilli. 30 gr rúgbrauð og 300 gr gulrætur
milli: jarðaber+ ananas í blandara
milli: prótín bar úppss... var bara að deyja úr hungri í skólanum!!
kvöldmatur: nautakjöt og grillaður ananas+ 300 gr grænmeti.
Mjólkurskammtur + frosin ber í kvöldkaffi.

Alveg nýja stikkorðið mitt er DDV og AA setningin: EINN DAGUR Í EINU!
Held að ég verði að læra það sko, hugsa alltof mikið um daginn í gær, á morgun já eða næsta mánuð! Bara taka einn dag í einu þá reddast þetta og þetta er ekki eins erfitt:)

Gangi ykkur vel, tek rúnt á ykkur átaksskvísur;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 12:39:31 / nyrlifstill

jæææææja

úbbosssí ég ekki virk hér undanfarið. Hef svo sem góða afsökun því ég var með alveg yndislega gest hjá mér hér í Danmörku svo við vorum bara að hugga okkur úti í staðinn fyrir að vera límdar við tölvuna.
Annars gekk mataræðið bara ágætlega þrátt fyrir að ég hafi verið meira og minna úti alla daga og úti að borða. Reyndar smá svindl því ég fékk mér smá rauðvín og hvítvín, einu sinni köku líka. En vitiði ég ætla ekkert að gráta það því ég var búin að ákveða að vera ekki eins hörð meðan hún væri hér en samt vorum við svo duglegar. Svo að smá svindl gerir engum mikið mein, við allavega rukum beint á fætur aftur eftir að hafa "fallið":)

Ætli vigtin standi samt ekki í stað þessa viku, finn það einhvernvegin á mér. Kemur í ljós á morgun. Ég ætla bara að vera extra dugleg núna og bæta upp helgina.
Annars vona ég bara að ykkur gangi ljómandi vel, ég ætla að halda áfram að vera með dagbók og hún byrjar bara á morgun með nýrri viku.

Knús á alla átaksbloggara og sendi ykkur jákvæðisstrauma:) Lítill ljósálfur sem kallar sig Líf hefur náð til mín með bjartsýnis og gleðitali sínu. Hún á án efa eftir að koma sömu skiluboðum til ykkar þegar heimasíðan hennar hefur opnað:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 19:18:53 / nyrlifstill

Dagur 4 og vigtun

Jæja degi 4 að ljúka. Mér gengur svona lala, er að drepast úr sætindaþörf og mér finnst ég endalaust svöng :(
En vigtunin fór vel, missti 1.2 kg sem ég er bara rosa sátt með. Sérstaklega með það í huga að ég var alls ekki dugleg fyrstu 3 dagana.
Æji var svo peppuð í morgun eftir vigtunina, langaði bara að borða 100% alla daga og missa endalaust. Svo leið á daginn og eina sem ég hugsaði var að ég ætti alveg skilið að fá mér smá þar sem vigtunin gekk svo vel...     WHAT! Hvað er vandamálið sko :(

En hér er dagurinn:
mm: 30 gr rúgbrauð m. tsk af léttu, glas af appels. djús og 1 soðið egg
milli: glas af smoothie ( 1/3 lítill ananas+ 1/3 banani)
hm: hamborgari með öllu ( ddv vænn auðvitað samt)+ 350 gr gulrætur
milli: bjó til búðing úr mjólkurskammtinum og dr. oetker dufti ( sá það á minus50.dk)

á eftir að borða km en þar er laxasteik á borðstól og frosið grænmeti á pönnu.
Ætla að hendast svo í rúmið og vona að dagurinn á morgun verði auðveldari!

Vonandi gengur öllum vel


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 19:37:12 / nyrlifstill

Dagur 3 bara 100% vúhú

Loksins kom að því að átti 100% dag eða það held ég eftir bestu vitund. Ég finn alveg svakalega fyrir sykurþörfinni, hausverkur og þreyta búin að gera vart við sig í dag. Hef samt tekið eftir að mér líður svo miklu betur. Er að drífa mig í að gera verkefni sem ég hef látið bíða lengi og hef kviðið fyrir en í dag lét ég til skarar skríða og er svo stollt af því. Ég vill meina að DDV mataræðið sé að hjálpa mér í því, aðallega vegna þess að þegar það tekst vel að fylgja svona öguðu prógrammi þá byggist upp egóið og maður verður tilbúin í miklu meira. :haha: Er allavega súper sátt við daginn, bæði matarlega og athafnalega séð. Reyndar sökum höfuðverkjar og orkuleysis sleppti ég æfingu, líka að drepast úr beinhimnubólgu sem er nú ekki það besta.

En hér er dagurinn
mm: jógúrt m. 30 gr af cheerios, appelsínudjús
milli: ananas+ banana smoothie
hm: núðlur, grænmeti og kjúlli steikt á pönnu með chili og pipar... namm!!
milli:restin af ananas+ banana smoothie
milli2: bökuð epli með kanil. Smá jógurt hrært með kakó, vanillu essens og sætuefni :)
km: hamborgari ( án brauðs) m. osti, 2 tsk létt mæjó, gulrætur og agúrka með

endilega ef einhver DDV expert að kíkja þá má alveg koma með komment ef það er eitthvað.

Er að fá svo leið á gulrótum, borða þær alltof mikið. Er dálítið hugmyndalaus um hvað ég á að gera nýtt, alltaf með það sama. Þarf að vera dugleg að gera svona matarplan fyrir vikuna og elda eftir uppskriftum:)

Annars er vigtun á morgun, dálitið spennt. Vona að síðustu dagar segji eitthvað.
Gangi ykkur vel


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 20:16:11 / nyrlifstill

Dagur 2

Jæja þetta mjakast, þetta var nú ekki 100% dagur eins og hann átti að vera. Ég skrifaði hér til hliðar ýmislegt sem hvetur mig áfram og eins veikleika mína sem enda oft með átkasti.
Ég fattaði eitt til viðbótar meðan ég var að elda sem er að ég narta á meðan ég er að elda! Finn mér eitthvað til að narta, ekkert endilega óhollt en bara eitthvað og oftast geri ég þetta án þess að taka eftir því. Núna nartaði ég í 1 og 1/2 piparköku, hefði getað orðið meira en ég fattaði hvað ég var að gera og náði í vatnsflöskuna mína til að fá mér sopa af og til í staðinn fyrir nart :)

En allavega dagurinn er svona, held að þetta sé fínasti dagur eða hvað? Reyndar fattaði eftir á að auðvitað átti ég að sleppa kjúllanum í hádeginu fyrst ég fékk mér eggin en er það rosa slæmt?

Mm: hafragrautur, pera og kaffi
æfing: hljóp 5 km og fullt af styrktaræfingum
Hm: kjúklingabringa og 400 gr gulrætur í blandara.
Milli: bakaði epli m. kanil og gerði uppskrift sem ég sá hjá EllyMae eða, 2 egg+ sætuefni  hrært saman. Svo kakó og vatn blandað saman. Þessu öllu síðan blandað saman. Borðaði síðan eplið og þetta saman:) Ekkert það besta saman svo sem hehe
Km: tortilla bökur ( í staðinn fyrir brauð í dag), kjúklingur og sýrður rjómi. 350-400 gr af grænmeti steikt á pönnnu með.
Kk: ananas+1/2 banana smoothie.

Hvernig er þessi dagur DDV experts? Veit að það eru nokkrir feilar þarna en hvað finnst ykkur? Og finnst ykkur vanta eitthvað?

Gangi ykkur vel annars, ég er orðin smá spennt fyrir vigtun á miðvikudaginn. Sjáum hvort að fyrri partur vikunnar hafi kannski eyðilagt allt eða þetta nái að bjargast fyrir horn;)




» 5 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 20:53:57 / nyrlifstill

1 dagurinn

Fyrsti dagurinn var svona. Ætla að segja þetta fyrsta daginn bara því hitt telur ekki með, barasta allt of mikið sukk ojoj

Morgunm: hafragrautur, appelsínudjusglas og kaffi
Hádegi: 2 egg, pítubrauð með ost og 2 tsk létt majo, 400 gr gulrætur
Milli: smoothie ( mjólk. jarðaber og 1/2 banani+ smá sætudropar)
Kvöldmatur: sveppir, rækjur og hvítlaukur steikt á pönnu með smá ólívuolíu í forrétt.
Steiktur fiskur og ofnbökuð paprika fyllt af sveppum, kúrbít og chili, namm namm

Borðaði 5 mm kúlur ojoj skil ekki af hverju! Bara lengur að losna við þessa svakalegu sætindaþörf í staðinn :^)

En bara gera betur á morgun! Lucks to you duglega fólk ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 20:36:02 / nyrlifstill

Allt í volli

:s
Já ég gerði það sama og svo oft áður, byrjaði af krafti og alveg þvílíkum spenningi en kylliféll svo bara :( Vitiði þetta er ekkert smá orkueyðandi að klikka alltaf svona:$
Ég tók myndir af mér áðan, alveg ljótustu myndir sem hægt er að taka en ég held að þær hjálpi mér að muna af hverju ég er að þessu.
Ætla að njóta þess á morgun að eyða frídegi í að skrifa markmið, ákveða ástæður fyrir þessi lífstílsbreytingu og því um líkt.
Eruði með einhver ráð til að gera þetta núna for good en ekki alltaf í svona hollum sem taka enda:( Gæti alveg grátið!
Ætla mér að byrja aftur í fyrramálið!! Skal, Ætla og Get!

Mjónan :evil:



» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 17:31:05 / nyrlifstill

Fyrsta skrefið mitt í átt að nýjum lífstíl

Hæ átaksbloggarar
Ég er nokkuð ung stúlka sem hefur nú í gegnum árin verið frekar heilsusamleg og dugleg að hreyfa sig. Ég er þó alveg 15 kílóum of þung og nú er komin tími til að þau hverfi og komi ekki aftur:haha:
Ég á litla stelpu þannig að mörg af þessum kílóum eru nokkuð ný en þó voru alltaf ca 10 kg sem ég vildi ná af fyrir óléttu.
Ég er dugleg að æfa og finnst það gaman en mataræðið er bara alltaf vandamál. Ég er svo mikill sælkeri og finnst saltaður og óhollur matur allt of góður!
Ég ákvað að setjast niður og skrifa hér svartar syndir mínar á blað því ég held að það muni hvetja mig áfram í að vera dugleg.
Ég skráði mig í DDV eða danska kúrinn ( þó ég vilji nú helst ekki kalla þetta kúr) um daginn og byrjaði formlega í gær í viktun. Svo að nú eru framundan 10 vikur í "átaki". Vil helst ekki kalla þetta átak heldur því að þetta er nýr lífstíll sem ég vil temja mér.

Ég er nú búin að stofna þetta blogg og ætla að koma með matardagbækur, hreyfingu, markmið og verðlaun og annað slíkt í linka hér til hliðar. Vonandi verðið þið dugleg að kommenta og koma með góð ráð og kannski uppskriftir :lol:

Kem með fyrsta daginn á morgun í dagbók- þangað til þá gangi öllum átaks dugnaðar fólki vel!

Mjónan!


» 7 hafa sagt sína skoðun


Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1445 dögum
Breytti um lífstíl með hjálp DDV
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1403 dögum
Búin að losna við fyrstu 5 kílóin
Um mig
Ég er 25 ára stelpa sem að er í átt að nýjum lífstíl. Ætla hér að skrifa um mig og mitt "átak" og leyfa ykkur að fylgjast með.
Klukkan
Þínir flokkar
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 12335