Jæja þetta mjakast, þetta var nú ekki 100% dagur eins og hann átti að vera. Ég skrifaði hér til hliðar ýmislegt sem hvetur mig áfram og eins veikleika mína sem enda oft með átkasti.
Ég fattaði eitt til viðbótar meðan ég var að elda sem er að ég narta á meðan ég er að elda! Finn mér eitthvað til að narta, ekkert endilega óhollt en bara eitthvað og oftast geri ég þetta án þess að taka eftir því. Núna nartaði ég í 1 og 1/2 piparköku, hefði getað orðið meira en ég fattaði hvað ég var að gera og náði í vatnsflöskuna mína til að fá mér sopa af og til í staðinn fyrir nart
En allavega dagurinn er svona, held að þetta sé fínasti dagur eða hvað? Reyndar fattaði eftir á að auðvitað átti ég að sleppa kjúllanum í hádeginu fyrst ég fékk mér eggin en er það rosa slæmt?
Mm: hafragrautur, pera og kaffi
æfing: hljóp 5 km og fullt af styrktaræfingum
Hm: kjúklingabringa og 400 gr gulrætur í blandara.
Milli: bakaði epli m. kanil og gerði uppskrift sem ég sá hjá EllyMae eða, 2 egg+ sætuefni hrært saman. Svo kakó og vatn blandað saman. Þessu öllu síðan blandað saman. Borðaði síðan eplið og þetta saman

Ekkert það besta saman svo sem hehe
Km: tortilla bökur ( í staðinn fyrir brauð í dag), kjúklingur og sýrður rjómi. 350-400 gr af grænmeti steikt á pönnnu með.
Kk: ananas+1/2 banana smoothie.
Hvernig er þessi dagur DDV experts? Veit að það eru nokkrir feilar þarna en hvað finnst ykkur? Og finnst ykkur vanta eitthvað?
Gangi ykkur vel annars, ég er orðin smá spennt fyrir vigtun á miðvikudaginn. Sjáum hvort að fyrri partur vikunnar hafi kannski eyðilagt allt eða þetta nái að bjargast fyrir horn