Ég í átt að nýjum lífstíl og líkama
Könnun
Hreyfiru þig?
Nei
3 atkvæði

Já 1-2x í viku
0 atkvæði

Já 3-5x í viku
3 atkvæði

Já en mæti bara örsjaldan
1 atkvæði

Já, mæti sko næstum alla daga
6 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 13
Dagsetning
16. mars 2010
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox

19.03.2008 08:03:55 / nyrlifstill

-400

Jæja -400, þetta smá mjakast! En ofsalega hægt. Þá eru ekki farin nema 1,8 kg í heildina. Reyndar er búið að vera crazy að gera hjá mér og ég bara hef ekki verið nógu dugleg að skipuleggja mig í þessu amstri svo að ég hef ekki verið nálægt 100%. Og svo er ég með svo svakalega beinhimnubólgu sem hefur verið að hrjá mig í næstum 5 vikur núna svo að ég hef ekki getað hlaupið nógu mikið undanfarið. Ætla nú að láta doksa kíkja á mig, held að þetta sé ekki eðlilegt. Ætla líka að tékka á bætiefninu AstaZan, þekkiði það? Hef tekið það áður því ég gjörsamlega gat ekki gegnið af harðsperrum og það virkaði rosa vel! Ætla að prófa það núna og athuga hvort beinhimnubólgan hverfi ekki í leiðinni 8|

Annars eru 7 dagar í fyrsta markmið sem eru 5 kg! Sé nú ekki fyrir mér miðað við hvað allt gengur hægt að ég missi allt í einu 3,2 á einni viku!! En draumar geta nú reyndar ræst hehe svo að ég held ótrauð áfram:lol: Ætla allavega ekki að breyta næsta markmiði því það verður bara refsing að ná því þá fyrr.

Hvernig er það, nú er ég með barn á brjósti ( 7,5 mánaða og drekkur mikið) , borða hollt og hreyfi mig MIKIÐ, ætti ég ekki að vera að detta í sundur!!? Hefði haldið að það ætti frekar að vera casið en að ég myndi ekki ná af mér þessum ljótu þrjósku óléttu/auka kílóum :evil::cry: Alveg sorglegt buhu

En gangi ykkur vel8)


Snæja skrifaði
Nú hef ég ekkert vit á brjóstagjöf en til lukku með léttinginn! :D
Dídí skrifaði
Heyrðu, ég er ekki frá því að þessir sokkar hjálpa! Svo er náttúrulega hvíld fyrir öllu. Eins sagði sjúkraþjálfarinn mér að bera voltaren krem á sköflungana. :) Ég fékk þessa sokka í iljaskinn á Háteigsvegi. Rándýrir reyndar, 2500 kall! En með brjóstagjöfina, þú ert að drekka tvöfaldan mjólkurskammt er það ekki örugglega?
Rakel skrifaði
400grömm eru 400grömm í rétta átt :)

Með brjóstagjöfina þá á þetta bara alls ekki alltaf við, ég léttist ekkert á meðan ég var með mína á brjósti og held ég þekki kannski tvær sem hafa virkilega lést eitthvað á meðan á brjóstagjöf stóð.

Gangi þér vel
Mjónan skrifaði
Frábært, ætla að athuga þessa sokka og bera voltaren á mig. Heyrðu jú Kristín var einmitt búin að segja mér að auka mjólkina og eins fituna. Er komin í gírinn eftir allt of langt frí og núna mun ég sko passa upp á það. Nei Rakel, það er greinilegt sko, sumir í kringum mig hrynja aðrir bara alltaf eins þrátt fyrir brjóstagjöf. Var bara að ég væri ein af þessum sem hrynja hehe:)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 762 dögum
Breytti um lífstíl með hjálp DDV
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 720 dögum
Búin að losna við fyrstu 5 kílóin
Um mig
Ég er 25 ára stelpa sem að er í átt að nýjum lífstíl. Ætla hér að skrifa um mig og mitt "átak" og leyfa ykkur að fylgjast með.
Klukkan
Þínir flokkar
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 6096